Miss Pearl

Perlan

22.11.2007 15:55:51 / perla

loksins loksins

Já ég held að ég c nú ekki að fá nein bloggverðlaun ársins ha ha en það hefur verið lítill tími til þess síðustu daga. Ég er búin að liggja í flensu númer tvö á stuttum tíma og hef engan tíma fyrir þetta þar sem þetta er næst síðasta vikan í skólanum. En þessi tími er samt skemmtilegur, svona rétt fyrir jólin, því á þessum tíma koma gestirnir frá eyjum. Í seinustu viku komu Jenný, Júlíana, Gummi Óli og Gísli Snær og í dag kemur amma Gugga og á morgun kemur mamma og Halla Kristín, veit ekki hvort pabbi komi með.

 

Svo langar mig að óska Hörpu og Magga enn og aftur til hamingju með litla prinsinn.. núna þekki ég 4 manneskjur sem eiga afmæli 15 nóvember:haha: 

 

Jenný er að flippa núna, hún á að sýna í Austurbæjarleikhúsinu í byrjun des og hún er með frekar stórt hlutverk í byrjun og svolítið mikið af texta sem hún þarf að læra og dóttir mín er nú þekkt fyrir allt annað en þolinmæði. En hún á að mæta á æfingu á eftir og það er legið yfir þessu með yours truly hangandi yfir sér að lesa yfir hana ha ha ... já það er erfitt að vera leikari;)

 

En það var stöðupróf í stærðfræði hjá henni og mín fékk 9.5! :haha::haha:Mamman náttla að rifna úr montni yfir þessu en hún er búin að vera mjög dugleg að æfa sig í stærðfræði. Verst hvað foreldrarnir eru orðnir ryðgaðir í þessu en þetta kemur.

 

Svo fórum við á jólahlaðborð á laugardaginn síðasta á Brodway og það var mjög gaman. Það var George Michael show og ég sat eiginlega bara þarna og hugsaði til Bippu minnar ha ha ,ef einhver á George Michael þá er það hún;) En þetta var mjög flott og Selma stóð sig glæsilega með búningana. Reyndar fannst mér Jógvan vera síðri en Friðrik Ómar var að fíla sig miklu meira og náði honum betur. Jóhann segir að það sé af því að þeir séu báðir í sama liðinu (sko Friðrik Ómar og George Michael) en ég held að Jógvan hafi bara ekki verið að fíla sig nóg greyið. Svo eftir á var ball með Eurobandinu sem er skemmtilegt band sem spilar bara eurovision en þetta getur orðið svolítið einhæft eftir smá tíma. En eftir ballið var ég búin á því og fór heim en Jóhann og Toggi máluðu bæinn rauðann fram að morgunn he he 8)

 

Jæja ætla að lesa yfir hjá skvísunni... svo hún verði aðeins meira pirruð út í mig:p


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 19:16:48 / perla

afmæli afmæli afmæli

Elsku Helga Sigrún, Halla Guðný og Ásta Sif..
Til hamingju með afmælið í dag!!!!!
Knús og kossar***
Perla, Jóhann og Jenný 
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 22:10:59 / perla

jólaskap jólaskap jólaskap trallalaa

Jæja lítið að frétta.. allir búnir að fá flensuna hér á bæ þannig að ástandið á heimilinu er ekki það besta...

 

Erum að fá fullt af gestum.. Gummóli, (segi nafnið hans alltaf í einu orði og skrifa það bara líka ha ha) Gísli, Júlíana og Jenný amma. Þetta verður nett kósý svo langt síðan maður hefur hitt alla:)

 

Svo var gæsað Hrefnu H á laugardaginn. Það var mjög gaman, við fórum með hana í Baðhúsið og hún fékk 80 min heilnudd þannig að skvísan ætti að vera búin að losna við mesta stressið úr líkamanum og við hinar vorum í pottunum á meðan. Síðan fékk hún þessa líka sætu bleiku vængi og við fórum með hana á Grensás til Steina (sem tók reyndar ekki eftir vængjunum ha ha.. hú er greinilega vön að mæta svona til hans;) og síðan um kvöldið var saumó hjá Þórönnu. Hún gerði geggjað kjúklingasalat og svo var kaka frá Brynju og nammiréttur frá Fríðu og svo var tjattað yfir ostum og rætt alheimsvandamál. Ég ætla að plata Þórönnu með mér í að mótmæla háu bensínverði og matvælaverði með því að loka Miklubrautinni. Ég ætla bara að leigja nokkra vörubíla og gera þetta í Frakklandsstíl. En ég er komin út fyrir eftið ha ha... En já þetta var fámennt en góðmennt og ég er pottþétt á því að svona vil ég láta gæsa mig, hef takmarkaðan áhuga á einhverju brjálaðu brilleríi. Rólegheit með bestu vinkonunum og svo bara ostar og þægilegheit um kvöldið, já takk:) Þá er bara að fá Jóhann til að giftast mér ha ha ha...... :P

 

Svo núna á laugardaginn er árshátíðin í vinnunni hjá Jóhanni og það er Brodway og George Michael showið takk fyrir! Vá hvað mig hlakkar til og jáhhh... ég veit bara ekkert hvað ég á að fara í... Anna Erla var svo yndisleg að bjóða okkur og Önnu í mat umkvöldið en því miður missum við kærustuparið af því en Anna ætla að taka skottuna með sér, hún ætla að passa um kvöldið þessi elska. Fíla það að hafa litlu systir hérna í svona erfiðu námi, hún getur alltaf passað .. ja þegar ég fer út sem er nú ekki það oft þannig að ástandið er nú ekki svo slæmt pössunarlega;)

 

Jæja ætla að halda áfram að læra.. þarf að teikna náttúrugripasafnið sem ég er að hanna í hönnun 400, bara gaman. Allra veganna skemmtilegra en verkefnið í 500 takk fyrir, því það er pylsuvagn sem er bara leiðinlegt. Mér finnst pylsur ekki einu sinni góðar! En svona er hönnun, maður fær ekki alltaf skemmtileg verkefni.

 

Pís out honeys***** þúsund knús og kossar!


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 03:07:26 / perla

ho ho ho hey hey hey ha ha ha....

Eigum við eitthvað að ræða kjánahroll... Við kærustuparið vorum að horfa á Laugardagslögin og þegar lagið eftir Barða kom þá fékk ég meiri aulahroll en ég fékk þegar Ásgeir Kolbeins var Tekinn.. ja eða næstum því;) Ofurmáluðu trommararnir voru svo eitthvað “blank” í framan þrátt fyrir að vera greinilega að vanda sig (þeir þurftu samt lítið að syngja.. en lip sinc getur verið erfitt líka, spurjið bara litlu systir Jessicu Simpson) og stelpugreyið að deyja úr næringarskorti að reyna að vera sexy (svona svipað ástand og þegar Paris Hilton er að reyna að danca sexy með beinunum sínum.. not happening:$:$ ) Og eigum við eitthvað að ræða Scooter eftirlíkinguna... not even going there... en vilji þið heyra mesta skandalinn... ég rauk beint í símann og KAUS lagið!! Ef þetta er ekki euro-trash-balkanskagalegt lag þá veit ég ekki hvað. Og Barði alltaf jafn hress og sjarmerandi ha ha;) 

 

En ég er öll að hressast.. helvítis flensan farin úr skrokkinum og ég ákvað að vera rosa rómó við fjölskylduna mína í kvöld og eldaði þennan líka rosa kvöldmat með jólaöli, kertaljósum og alles... og fyrst hringir Jenný “hæ mamma mér var boðið í mat hjá frænku hennar Betu.. elska þig bææææ” þannig að ég legg bara á borð fyrir tvo og bæti við kertum (ennþá meira rómó;) en svo mætir kallinn ekkert á svæðið... þá gleymdi hann sér hjá Steina en ég var nú ekkert reið.. bara aulaleg þar sem ég var eiginlega búin að borða þegar hann kom ha ha (var orðin svo svöng í þennan flotta mat að ég gat bara engan veginn beðið eftir honum... sat ein með Bonnie Tyler (sagði að þetta ætti að vera rómó ha ha) en hvað er betra en að skófla upp í sig góðan mat með Total eclipse of the heart ha ha:haha:

 

Ég bað Jenný um að gera jólagjafalista (nota bene ég er búin að kaupa ALLAR jólagjafir nema handa henni og Jóhanni...) og jebbs hún bað um:

1.klappstýrubúning :lol:

2.Pleymó (kann ekki að stafa þetta)

3.Nýjar gardínur???

4.Bratz tölvu (ha hvað er það?..allar uppl. Vel þegnar)

5.Stóra húsið í Toys R Us (eða Taus R” aus eins og hún skrifaði ha ha bara krútt en þetta hús kostar um það bil 20 þús. Kall takk fyrir) :$

 

Svo er Anna að koma heim og fallegu gullskórnir sem ég keypti á e-bay koma með henni... jeyyyyyy hlakka svo til! Þeir eru bara flottir sko!!!! Mamma og pabbi skiptust á að hringja og stríða mér með að þeir væru í vitlausum lit eða of stórir..mamma sagði að þeir væri passlegir á hana en hún er í 2-3 númerum stærra en ég og pabbi sagði að þeir væru GRÆNIR.. já þau eru alltaf jafn góð við mig ha ha:lol:

 

Jæja ætla að skella mér í háttinn.. setti inn nokkrar myndir í albúmið með verkum og dóti:)

Pís out.. og farið varlega dúllurnar mínar..

 

Kv. Perla 26 ára yngsta snótin í saumaklúbbnum:)

 

p.s. ákvað að opna síðuna þannig að ég er farin að ritskoða mig aftur.. fólk var ekki ánægt með mig og nafnið mitt afturábak er víst of flókið fyrir suma ha ha..aular  


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 22:34:45 / perla

mér finnst rigningin góð... darararrara óóóóó

Brrrr leiðindaveður úti. Er búin að vera frekar slöpp og sum prófin eru byrjuð hjá mér.. jebbs og ég verð búin 14 desember. Jólahlaðborð 15 des og svo styttist í eyjuna fögru. By the way ef einhver er til í að lita á sér hárið svart og fara í spænskuprófið mitt á morgun þá væri það vel þegið;)

 

Vorum í kveðjupartýi fyrir Fjólu og Magga á laugardaginn hjá Svandísi og Hlyn. Alltaf svo kósý hjá þeim. Þetta var mjög kósý, ég var nú nú í litlum djammfíling en æðislegt að geta setið svona í rólegheitum og spjallað við vini sína yfir ostum og kósýheitum. (jæja hvað er ég núna búin að segja kósý oft....;))Vorum svo komin heim um 2 leitði og ég rotaðist náttla eins og vanalega og vakna svo á 2 klukkustunda fresti þannig að þetta telst nú vera frekar lélegur svefn. Enda fer ég létt með að liggja svo uppí allann daginn ef ég er mikið slöpp...enda var ég köttur í fyrralífi en er svo að deita hund ha ha ha hann hefur pottþétt verið golden retriver, svona fallegur fjölskylduhundur en ég var frekur dekraður svartur inniköttur sem vildi kúra allann liðlangann daginn... og borða ha ha:lol:

 

Er einhver annar kominn í jólaskapið?? Ég er að missa mig! Fór í IKEA með Jóhanni og Jenný og við mæðgurnar keyptum okkur eins rauða loðna jólainniskó og svo sátum við saman um kvöldið að drekka jólaöl í jólabollunum okkar að leira (ja reyndar sat Jóhann líka með okkur því ég get ekki hnoðað leirinn, get bara skorið pínu út) Ég var að gera líkan fyrir götubekk sem ég hannaði en get lítið gert án Jóhanns í þessu ástandi. En hann er líka svo handlaginn þannig að ég er alveg að græða á þessu:) Svo fór ég og Jóhann í Rúmfatalagerinn og jebbs konan missti sig aftur núna yfir kertunum. Eins gott að þessi kerti verða ennþá til um mánaðarmótin þegar ég hef loksins “efni” á þeim:$

 

Jæja hafið það næs.. og kósý og farið varlega í hálkunni.

Knús og kossar** og ekki gleyma að kvitta.. elska félagslegar viðurkenningar..   knús og kram Perla

 

Sko sjáiði sæta kærustuparið ha ha:haha:



» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 19:17:45 / perla

áiiii...

Haldiði ekki að Perlan hafi bara fengið nýrnasteinakast í miðjum tíma í gær. Þetta sem læknarnir héldu að væri magabólgur var þá eftir allt saman nýrnasteinn. Og þetta er ógeðslega vont get ég sagt ykkur. Þannig að ég ætla að slaka á næstu 8 árin og vonandi kemst ég til eyja í nóvember... langar svo að komast aðeins í burtu..

 

Og svo var ég að fá einkunn í lokahópi hönnunardeildar og það var 10 þannig að ég er komin með þrennu:) Á núna bara eitt verkefni eftir og auðvitað er stefnan tekin á fjórðu tíuna;) Er nett happy með þetta!

 

Svo er Jenný núna að taka samræmdu prófin sín og mamman er pínu taugaveikluð með þetta og svo þegar hún kom heim í dag eftir íslenskuprófið og ég spurði hvernig var þá vildi hún bara ræða það hvað stólarnir voru rosalega þægilegir ha ha þessir gríslingar eru sko ekki að átta sig á tilgangi samræmdu prófanna;)

Og Anna hringdu í mig.. mér er boðið í partý hjá Kron Kron og langar að taka þig með á morgun:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 20:24:10 / perla

sunnudagur til mæðu....uhhhh

Líflínunúmerið þitt er 9
Þú ert hugsuður sem átt það til að týna þér í dagdraumum. Þú ert gædd(ur) innsæi og sýnir þörfum annarra samúð og nærgætni. Þú ert örlátur og góðhjartaður persónuleiki sem er alltaf til í að gera allt sem í þínu valdi stendur til að hjálpa þeim sem hafa þörf fyrir það. En farðu varlega í góðmennskunni og láttu ekki nota þig!

Spádómsnúmerið þitt er 9
Nú er rétti tíminn til þess að klára þau verkefni sem þú hefur haft á könnunni undanfarið. Þú ættir að taka líf þitt til endurskoðunar núna og losa þig við það sem þú hefur ekki not fyrir lengur. Búðu þig undir að segja skilið við fortíðina og farðu að horfa framávið fljótlega.
 

þá vitum við það. Ég er orðin svo ÞREYTT að hálfa væri nóg..  er að vinna verkefni í lokahópnum í hönnun og við erum að breyta aðstöðu nemenda á 4 hæðinni í skólanum og það þarf að vera fullkomnar teikningar (tækniteiknun og innanhúshönnun) og svo var náttfatanótt í Hólmaseli þannig að ég var að vinna á föstudaginn frá 22-8 um morguninn og ef einhver hefði stoppað mig á leiðinni heim og spurt mig hvaða ár það væri hefði ég örugglega svarað vitlaust ha ha... eða sagt brandara.. var komin með nettan svefngalsa í lokin ;)

Hitti líka Þórönnu, Fjólu og Hrefnu G. á B5 á fimmtudaginn.. alltaf svo gaman að hafa smá stelpukvöld á kósý kaffihúsi.. þessi staður er bara flottur á því ha ha. Svo er líka moooi hönnun í glugganum sem flestir ættu nú að taka eftir en það er hestur í raunstærð en er í rauninni lampi. Alveg nettur póstmódernismi í gangi þarna ha ha ha!

 Svo styttist í AFMÆLIÐ MITT... bara svona rétt að minna ykkur á það;) Langar svo að fara til eyja 9. 10. og 11 nóv bara svona aðeins til að fá mömmudekur á afmælinu og slaka á:) Þessi eyjaferð heldur mér eiginlega gangandi núna.. sé hana í hyllingum ha ha.  

Jæja hef eiginlega ekki tíma til að bulla meira í ykkur.. varð bara að setja smá inn.. er að skíttapa fyrir Hjördísi í blogginu;) Svo mæli ég með að kíkja á hönnunardálkinn í Fréttablaðinu í dag, þar er verið að segja frá frönskum hönnuði en það er búið að vera linnkur á hana hérna hjá mér í nokkra mánuði.. mæli með að þið kíkið á hana Sofie því hún gerir svo skemmtilega límmiða sem hressa upp á lífið:)

Ætla þó að fara að hægga þessu núna... að halda áfram að læra....

 Verið góð við hvort annað... og þá sérstaklega við mig 7. nóvember.. engar áhyggjur á eftir að minna ykkur á þetta í nokkur skipti í viðbót;) 

Knús og kossar****


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 19:27:16 / perla

jey blogg.....

Jæja veturinn að nálgast.. ég segi að hann c ekki kominn.. kóngurlær og fiðrildi eru ekki á veturna! Þannig að ég er nett sátt.. farið að dimma og allt orðið svo kósý og hægt að nota kerti eitthvað af viti... þetta er mest rómó tími ever! Er samt enn að reyna að sannfæra Jóhann um að gifast yfir vetrartímann.. sé þetta alveg fyrir mér með seríur og kertaljós

 

Er í vinnu núna, er að bíða eftir að einhver mæti:/ Annars er lítið að frétta af mér, hef verið löt við að blogga upp á síðkastið enda lítill tími til þess. Er reyndar komin aftur með þetta helv.. magasár en það er bara útaf gigtartöflunum, er ekki svona taugaveikluð ha ha;) Þannig að vítahringurinn er byrjaður, get lítið tekið verkjartöflur út af sárinu og spennast öll upp í maganum og það orsakar meiri gigtareinkenni þannig að þetta er frekar lousy staða. Þannig að ég þarf að haga mér næstu daga ha ha

 

Svo fórum við í afmæli til Helga um helgina.. ha ha Helgi héllt afmælið um helgi.. ok ok bad joke..:p Anyway alltaf gaman að hitta fleyri sem vinna með kallinum mínum:) Jóhann er núna hjá Þorsteini sem er allt annar by the way og við erum bara í skýjunum með þetta enda er hann baráttukarl!

 

En já fólkið er mætt þannig að ég er farin að vinna.. sko Hjördís ég get þetta alveg ha ha bara í minna mæli:/

 

Verið svo góð við hvort annað dúllurnar mínar!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 11:28:44 / perla

jeyyy Perlan að blogga!

Ehemm já kannski kominn tími á að skrifa eitthvað hérna áður en Hjördís kemur með næsta flugi og lemur mig ha ha.. hún er að rústa mér í blogginu núna get ég sagt ykkur;)

 

Ég hef haft hugann við lítið annað síðastliðnu daga nema Þorstein og fjölskyldu. En hann er baráttugaur og kraftaverk hversu mikið hann hefur náð sér enda er mikið beðið fyrir honum og fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum. Búið er að stofna reikning til styrktar Steina, Hrefnu og Kolfinnu litlu á reikn. 582-14-104449 kt. 280480-4449 og hvet ég fólk til að styðja við bakið á þessari sterku fjölskyldu á þessum erfiðu tímum.

 

Mamma og pabbi og co. Eru núna að fljúga heim frá Tenerife (hmmm held að það sé útlönd, frétti að fólk væri að fara út fyrir Ísland, var búin að gleyma að það væri hægt) og Tinna hefur verið í pössun hjá okkur. Vá hvað ég á eftir að sakna dekurrófunnar... elska dýr...næstum því jafn mikið og Hjördís Elsa! ;)

Svo var ég að koma úr prófi úr tyrkja Guddu.. gekk öðga vel en mundi ekki svarið við einni spurningunni en sem betur fer var hún bara lítil og skipti litlu máli. Að mínu mati ættu allir í íslensku í Framhaldsskólanum í eyjum að lesa þessa bók, hún er algjör snilld og ég skynjaði hana allt öðruvísi fannst mér en fólkið sem er með mér í ísl því ég þekki söguna svo vel þar sem við þurfum að læra aðeins um hana í grunnskóla í eyjum. Svo var ég að skila greinagerð um siðfræði auglýsingahönnuða og er í alvöru að spá að setja hana hér inn á síðuna... pælingar sem fólk ætti að skoða.

 

Svo er Jenný litla komin í leiklist hjá Agga frænda og er alsæl! Held að þetta c akkúrat eitthvað fyrir skottuna mína en hún er mikið að leika fyrir okkur hérna heima. Svo verður sýning í desember í Austurbæjarleikhúsinu:haha:

 

Jæja... veit ekki hvort ég ætti að segja ykkur frá þessu, en á meðan ég er að skrifa þetta var ég að skoða sjónvarpsbæklinginn og þar kemur auglýsing frá nýju kínversku veitingarhúsi og ég segi við Jóhann “hey ætli þetta c veitingahúsið sem bróðir Jackie Chan á! Hann heitir Rikki...Hey nei það er í Kringlunni..” og þá tryllist hann út hlátri og spyr mig hvort svampur Sveinsson c þá ekki bara bróðir sinn.. þeir hafa líka sama eftirnafn!!... já ég get ekki ALLTAF verið gáfuð en þeir sögðu í útvarpinu á FM Reykjavík að þeir ætluðu að skella sér að borða hjá Rikka bróðir hans Jackie Chan og ég náttla trúi öllu sem þeir segja, en þá vitið þið það... þetta er ekki bróðir hans Jackie sem er að afgreiða ykkur í Kringlunni :$

Jæja svo er bara vinna í kvöld og svo nammi en tengdó voru að koma heim í dag frá Tenerife og mamma og pabbi koma seinna í dag.. eins gott að þau komi líka með eitthvað nammi handa okkur þar sem við erum núna hvítust í báðum fjölskyldunum!!:P

Farið vel með ykkur og veri góð við hvort annað og núna er rétti tíminn til að byrja að föndra handa mér jólakort.. er jafnvel að spá að senda nokkur út sjálf um jólin aldrei þessu vant!!!

   

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 20:53:59 / perla

allt í volli en dóttirin er snillingur

Jæja eigum við eitthvað að ræða Perluheppnina...

Einn peyjinn hérna í félagsmiðstöðinni minni er búinn að vera sveittur yfir að reyna að laga tölvuna mína og bjarga gögnunum mínum.. nei nei harði diskurinn er gjörsamlega dauður þannig að hann getur ekkert gert. Reyndar ætlar þessi dúlla að láta mig fá fullt af forritum þegar ég er búin að kaupa nýjann harðann disk en ég vinn ekki í ágúst þannig að við erum blankari en villikettir:( 

Þannig að við erum búin að tapa öllum skrilljón myndunum okkar og aumingja Jóhann er núna heima grátandi yfir Fottball Manager og allar smásögurnar hennar Jennýar eru glataðar nema sumar sem ég saveaði á disk.

En smá um æðislegu dóttir okkar.

Við fórum á foreldrafund í dag og skvísan er með þeim efstu í lestri! Þegar hún kom úr Víkurskóla þá ar hún illa læs enda var engin kennsla í gangi þarna og hún var mjög neðarlega í Seljaskóla þegar hún kom í 2. bekk. Og við tókum okkur á og kennarinn er pottþéttur að hún nái hámarkinu í vor. Við erum að rifna úr stollti!!:haha: Svo sagði kennarinn okkur að hún væri mjög vinsæl í dansinum og þau þurfa að aðskilja peyjana en það er víst slegist um dömuna haha;)

Jæja nóg í dag:) Ætla að kaupa súkkulaði handa Jóhanni og reyna að hugga hann...... 


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 22:14:31 / perla

Ætlaði bara aðeins að láta vita af mér..

Er búin að búa til nýtt myndaalbúm frá brúðkaupinu hjá Ingibjörgu og Jóni Garðari en svo kemur bara alltaf x í staðinn fyrir myndina þannig að ég ætla að reyna betur á mánudaginn.

Var á opnunarkvöldinu á Ísmótinu í gær og það var mjög gaman. Kampavín alls staðar og fullt af fríum prufum og gelneglur og brúnnkukerm, hárgel og NAMMI út um allt. Ég kom heim með alls kyns dót og góða magapínu (mæli ekki með nammi og kampavíni þegar ekki gefst tími fyrir kvöldmat) Svo komst Jóhann ekki að ná í mig alveg strax þannig að ég þvældist um og skellti mér bara í förðun og solleiðis á meðan ég beið;) Rotaðist svo um 11 leitið og svo var skellt sér í vinnu í morgun. Hólmasel er 15 ára þannig að það var afmælisveisla. Síðan var brunað beint úr þeirri veislu á sýninguna og þar var million manns og fullt af furðufuglum og hárgúrúum að sýna nýjustu hárgreiðslurnar ha ha:haha: 

Svo fer ég aftur 10 í fyrramálið að þrífa básinn og vinna og svo er galakvöldið annað kvöld.. jibbýýý get ekki beðið! Ekki nóg með að Páll Óskar verði þarna heldur var ég að sjá að Fjóla mín verður þarna líka!! Og ég náttla beint í símann en hún var að svæfa... ha ha Mikael svaraði í símann og ég spurði hvort þetta væri Íþróttaálfurinn og hann bara ha nautsss þetta er hann Mikael! Svo sagði hann mér að mamma hans væri að svæfa Evu systir sína sem væri rosalega hávær ha ha:haha:

En jæja ætla að fara að koma mér í svefngírinn... ótrúlegt hvað maður fer fyrr að sofa því eldri sem maður verður, ætli ég verði ekki sofnuð um fimm leitið þegar ég verð fertug með þessu áframhaldi........... nei grín;)

Knús og kossar******  (aukakossar til múttu og co!)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 21:54:42 / perla

Ísmót 2007

Ísmót 2007 verður um helgina og við erum búin að vera á million að gera allt klárt. Höfðum eiginlega bara viku til að gera básinn og það er frekar erfitt miðað við að hanna allt og redda öllu draslinu. Farið var um allann skólann með Baldri skólameistara að leita að gömlum ekta Iðnskólahlutum en kallinn hefur farið um skólann og hent öllu eins og hinn versti terroristi þannig að það varð mikil gleði þegar fannst forláta eldgamalt skrifborð í kjallaranum. Við ákváðum að þar sem það á að leggja niður Iðnskólann (þannig séð;) og sameinast við Tækniskólann og verða 2T sem mér persónulega finnst vera glæpur þar sem Iðnskólinn er stærsti og elsti iðnskólinn á landinu og hefur endalausa sögu og mesta úrvalið af iðnfögum... en já back 2 the point... þá ákváðum við að hafa þemað í ár svona gamaldags til að vitna í gömlu glæstu dagana skólameistaranum til mikillrar mæðu ha ha:haha:

En já það er nóg að gera.. er í skólanum núna frá 8 til 22 en annars þá er ég oftast til 18 því ég er að klára hönnun núna (svo klárast stúdentinn í vor..jibbý!) þannig að önnin verður frekar crazy þar sem við erum á þannig brautum að við hönnum hluti alveg til enda þannig að allt er framkvæmt og tökum þátt í keppnum og fleira fjöri. En ég setti inn nokkrar myndir frá undirbúningi sýningarinnar fyrir mömmu og pabba... set inn fleyri af sýningunni sjálfri eftir helgi:)

Svo er ég að fara með Jóhanni á árgangsmótið hans í eyjum og satt að segja hlakkar mig mest að hitta familyuna og hafa það næs og knúsa ömmu Perlu til hamingju með afmælið;)

Knús og kossar

Perla


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 23:22:28 / perla

Perlan ekki lengur ritskoðuð

já ég ákvað að læsa blessuðu síðunni... þá get ég líka talað illa um nágranna mína eða afgreiðslufólkið í Krónunni án þess að hafa móral ha ha.....

 En samt já ég er orðin leið á að ritskoða allt sem ég skrifa, er í þannig vinnu að það eru unglingar að goggla mig og lesa allt sem ég skrifa og það er ekki sniðugt ef mig langar að tjá mig um þynnkuna mína eða nýtt hjálpartæki. Þannig að ef þú hefur fengið lykilorðið, velkomin í minn alvöru heim og ég tek ekki ábyrgð á því sem hér fer fram.

Perla


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 00:34:35 / perla

eight legged freaks...!!

“eru þau þroskaheft!” “Nei hvað eru þið að gera..ekki fara þarna inn!” “Díses þessi deyja sko fyrst!” “Hey gaur.. ertu ekki í lagi!”.... ha ha ha þessi orð heyrast nokkuð oft hér úr stofunni hjá mér frá tveimur bjánum. Óskar Alex hennar Selmu gistir hjá Jenný og þau eru að horfa á Eight Legged Freaks sem er mynd um stökkbreyttar kóngurlær.. og það er bara fyndið að hlusta á þau. Við fórum í dag með Jenný, Betu og Óskar á flakk um bæinn á meðan Selma klárar stofuna. Hún og Harpa eru að opna búð/saumastofu á morgun undir nafninu Starkiller en þær vöktu flotta athygli á Made in Iceland sýningunni enda ekki skrítið... ég var í dag að hjálpa þeim að sauma merkimiðana á föt og brjóta sama og solleiðis og ég átti bara erfitt með að láta flíkurnar frá mér... allt í silfri, glimmeri og eigum við eitthvað að ræða um skær-sklær-BLEIKU kjólana! Ég var alveg í essinu mínu þarna. Þær opna stofuna á morgun klukkan 18 og eru á þriðju hæð í kjörgarði á Laugaveginum... allir með fashion sence þangað! ;) Jóhann er núna niðri á stofu að mála svarta vegginn.. hann og Krummi eru búnir að vera að setja upp hillur og mála í dag þannig að allt er að verða reddy:)

Tvær skræfur ha ha ha

(by the way... börnin eru máluð í framan ;) )

 

Svo hringdi Aggi frændi í dag og bauð mér nokkra leikhúsmiða á Öskubusku og ég fór með 8 krakka... bara fjör. Júlíana er að keppa hérna 8eigum við eitthvað að ræða hvað stelpan er góð, enda er Jóhann að rifna úr stollti og ekki skrítið. Ég hef nú lítið vit á fótbolta en fyrst að ég sá þetta.. þá sjá það allir:) ) Þannig að við buðum Júlíönu og 3 vinkonum hennar úr fótboltanum með á leiksýninguna.. og þetta var víst rosa fjör. Ég fór reyndar beint upp á saumastofu að reyna að gera eitthvað gagn er var aðallega að slefa yfir fötunum í tvo tíma ha ha....

Þau fengu andlitsmálningu í Kringlunni... rosa ánægð :)

Hluti af leikhúsgestunum :)

 

  

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 00:21:17 / perla

virðing á línuna...

Hver hefur hlustað á nýja diskinn með Magna..?? Vá persónulega þá finnst mér alla veganna lögin sem ég hef heyrt vera út í eitt BORING! Sorry en jebbs.. get varla hlustað á þau til enda, er komin á aðra stöð eftir nokkrar sek....

 

Annars þá var helgin mjög kósý, fór með mýsluna mína og Betu hinn helminginn af henni á Gay Pride. Og auðvitað festist rennilásinn á töskunni þannig að ég náði myndavélinni ekki upp úr töskunni fyrr en í endann á showinu...öðga típískt.

Þegar ég hitti kunningja sem hafa aldrei séð Jenný áður þá gera þau alltaf ráð fyrir að Beta vinkona hennar c dóttir mín en ekki Jenný, vá hvað dóttir mín er orðin pirruð á þessu ha ha.. bara fyndið en mamma Betu er frá fillipseyjum þannig að hún er dekkri en Jenný. En fólk sér oftast svipinn með okkur mæðgunum um leið og ég hef leiðrétt miskilninginn (nema þau séu bara að reyna að vera næs ha ha.. hún er nú frekar lík pabba sínum, frekar mikið ef út í það er farið;)... )

 

Svo var útilega með gamla settinu eftir gay pride og við komum heim í gær, ekkert smá nice að komast aðeins út úr stórborginni í kyrrðina. Fórum að skoða alvöru íslenskann dýragarð en persónulega fannst mér sum dýrin vera óhuggulega horuð.. en fólkið sem vinnur þarna er æðislegt. Jenný og Halla fengu að halda á kettlingum, hana og gefa afkomendum beljunnar pela (nafnið gjörsamlega datt úr mér núna...en það voru þau sem mér fannst vera horuð en kannski er þetta eðlilegt, ég er nú ekki mikið hangandi í fjósum landsins enda var ég ekki að meika lyktina ha ha )

 

Svo erum við búin að læsa aftur síðunni hennar Jennýar, fréttin um þessa barnaperra var nógu óhugguleg til að rjúka í tölvuna en þið sjáið vísbendinguna á forsíðunni.. þetta er MJÖG auðvellt lykilorð fyrir ykkur sem þekkið okkur;)

 

En jams kjams ætla að halda áfram að dunda mér hérna... er að breyta svefnóinu og solleiðis;)

 

Svo kemur Anna mín á föstudaginn og ég ætla að draga hana og gæjann hennar með mér og mínum á tónleikana hjá KB-banka:)

 

pís áút!!

 

p.s. Guðrún Birna hringdu í Andreu;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Eyjabloggarar